langt síðan síðast
Byrjum þá bara á byrjuninni.
Jólin voru góð, Dagný fékk FULLT af pökkum og þar var alveg fullt af fötum, sem er bara geggjað

svo fékk hún líka fullt af dóti og smá af svona matarsettum. Milli jóla og nýárs varð svo yndislegasta stelpan mín veik. Úff... það var sko ekki auðvelt, hún fékk þessa ælupest sem allir voru með. En hún var svo dugleg að drekka að það bjargaðist allt saman, drakk fullt af vatni og mjólk, þannig læknirinn sagði mér bara að hafa engar áhyggjur. Hún var nefninlega líka með bullandi hita eða rétt tæpar 39°C
Svo voru áramótin fín, en það var ekkert gert þar sem Stefán var MJÖG slappur og treysti sér varla til að vera með Dagnýju og ég vildi ekki vera að skilja hann eftir með hana ef hann væri eitthvað veikur.
Svo 30. des fékk Dagný í fyrsta skiptið graut og er núna farin að borða graut á kvöldin og grænmeti eða ávexti einu sinni yfir daginn. Annars er hún bara enn á brjósti

og er voða sátt sko

Hún er líka komin með þessa fínu rútínu, sofnar alltaf milli 8 og 9 og er vöknuð milli 8 og 9, sem er bara Mjög gott.
Svo fór ég á mitt fyrsta djamm, síðan október 2007, núna 9. janúar og það var brjálað stuð. Maren, Helga Dís, Vilborg Inga, Sunneva og Harpa voru hérna og við drukkum smá hérna heima en fórum svo á mörkina um miðnætti. Harpa var bara driver og fór svo bara heim til sín þegar hún var búin að skutla okkur

Þetta var bara gaman og hlakka ég til að gera þetta aftur, en það verðu ekki alveg í bráð.
Svo er bara Dagný að byrja á framhaldsnámskeiði í sundi á morgun og verður einmitt 6 mánaða líka á morgun.
Ég á svo afmæli á mánudaginn og ætla ég bara að hafa smá brauðrétt fyrir mö og pa og vona bara að þetta heppnist vel hjá mér. Annars er ekki meira að frétta. læt vonadi ekki líða svona langt á milli næst.
læt svo fylgja nokkrar myndir með... og Munið að kvitta


Sæta stelpan í jólakjólnum

flottu mæðgurnar á jólunum

Dagný fárveik milli jóla og nýárs að kúra í afafangi (hjá pabba mínum)

Sætasta setlpan rétt að veraða 6 mánaða

að lokum er þessi mynd af sund-drottningunni minni sem er að byrja aftur í sund (gömul mynd)